Isavia situr nú yfir sýknudómi Hæstaréttar yfir íslenska ríkinu og flugvélaleigunni ALC. Enn er óljóst hvort, og þá hvernig, fyrirtækið mun bregðast við.
mbl.is greindi frá því í gær að flugvélaleigan ALC og íslenska ríkið hefðu verið sýknuð af kröfum Isavia í Hæstarétti en málið snýr að kyrrsetningu fyrirtækisins á Airbus-þotu gegn skuldum flugfélagsins Wow air.
„Isavia er að fara yfir dóminn og m.a. að meta hvort félagið þurfi með einhverjum hætti að bregðast við honum,“ segir í skriflegu svari frá Isavia við fyrirspurn mbl.is.
Fyrirtækið hyggst ekki tjá sig frekar um dóminn eins og er.
Árið 2019 aftraði Isavia þotu ALC för frá Keflavíkurflugvelli vegna gjaldfallinna krafna á hendur Wow air, sem hafði leigt þotuna en bú flugfélagsins hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Var það gert á grundvelli þágildandi laga um loftferðir.
Héraðsdómur Reykjaness heimilaði innsetningu í þotuna sem ALC krafðist og var henni í framhaldinu flogið af landi brott.
Isavia reisti þá bótakröfu á hendur ALC einkum á hlutlægu bótareglunni í lögum um aðför frá 1989 en gagnvart hinum stefnda í málinu, íslenska ríkinu, var byggt á sakarreglunni (almennu skaðabótareglunni).
ALC höfðaði þá gagnsök gegn Isavia, byggða á því að sú háttsemi Isavia að hindra brottför Airbus-vélarinnar frá Keflavíkurflugvelli hefði verið ólögmæt og saknæm.
Er að því kom að meta hvort umdeild aðfarargerð fengi staðist taldi Hæstiréttur að ríkulegar kröfur yrðu gerðar til lagaheimildar sem fæli í sér greiðsluþvingun, einkum við þær aðstæður þar sem kröfur beindust að eiganda loftfars sem ekki hefði átt í kröfuréttarsambandi við rekstraraðila flugvallar.
Isavia var sýknað af kröfu ALC um tvær greiðslur en að öðu leyti var kröfum ALC vísað frá héraðsdómi við meðferð málsins þar. Var Isavia að lokum dæmt til að greiða ALC samtals þrjár milljónir króna vegna reksturs málsins á öllum dómstigum. Að lokum var Isavia gert að greiða ALC eina milljón króna í málskostnað fyrir Hæstarétti.