Nýr biskup tilkynntur í dag

Guðrún Karls Helgudóttir og Guðmundur Karl Brynjarsson eru í framboði.
Guðrún Karls Helgudóttir og Guðmundur Karl Brynjarsson eru í framboði. Samsett mynd

Rafrænni kosningu til biskups Íslands lýkur á hádegi í dag. Kjörstjórn kemur samanklukkan 12.30 og fer yfir úrslit kosninganna. Í kjölfarið mun hún birta niðurstöðuna á vef kirkjunnar.

Klukkan 14 í dag mun næsti biskup Íslands síðan hitta starfsfólk þjónustumiðstöðvarinnar á Biskupsstofu í Grensáskirkju, að því er segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert