Laugardalslaug lokuð vegna bilunar

mbl.is/Hari

Vegna öryggisbilunar í laugarkeri Laugardalslaugar þarf að loka lauginni dagana 8.-10. maí. Tæma þarf laugina til þess að viðgerð geti farið fram, að því er segir í tilkynningu. 

Þá kemur fram, að laugin opni aftur klukkan 8:00 laugardaginn 11. maí.

Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert