Lögreglustöð 1, sem sinnir útköllum í stórum hluta borgarinnar og á Seltjarnarnesi, barst tilkynning um eld í heimahúsi. Þar hafði kviknað í rúmfötum. Slökkvilið sá um að slökkva og reykræsta húsnæðið.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Sama lögreglustöð sinnti einnig útköllum vegna tveggja umferðaróhappa. Eitthvað tjón varð á bifreiðum í báðum óhöppum en ökumenn eru óslasaðir.
Þá var tilkynnt um innbrot í heimahús og í geymslu í fjölbýlishúsi. Einnig barst tilkynning um þjófnað úr verslun.
Lögreglustöð 3, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti, sinnti einu umferðaróhappi. Eitthvað tjón varð á bifreiðum en ökumenn eru óslasaðir.
Sama lögreglustöð sinnti einnig útkalli vegna líkamsárásar.