Nóttin var róleg á Reykjanesskaga, sem er ólíkt nóttinni þar á undan, en þá mældist nokkur skjálftavirkni á svæðinu.
„Það var að mestu rólegt í nótt á Reykjanesinu,“ segir Einar Hjörleifsson, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
Einar segir að Veðurstofan muni vakta svæðið mjög vel í dag. Þá hafi vísindamenn fundað í gær, þar hafi komið fram að auknar líkur væru á kvikuhlaupi og öðru eldgosi.
„Við þurfum að vera mjög vakandi yfir mælitækjum okkar núna á svæðinu. Það getur verið mjög stuttur fyrirvari brjótist annað eldgos út,“ segir Einar.