Einstaklingur sem varð fyrir alvarlegu ofbeldi sem átti sér stað í heimahúsi í Reykholti í lok apríl er frá Möltu en ekki Palestínu.
Þetta staðfestir Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is, en RÚV hafið greint frá því og vísað í heimildir að þolandinn væri Palestínumaður.
Jón Gunnar kvaðst ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu en sagði rannsóknina yfirgripsmikla og í fullum gangi. Um er að ræða brot er varðar meinta frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti.
Þrír karlmenn og ein kona hafa sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins og eru allir hinna grunuðu Íslendingar.
Aðspurður kveðst Jón Gunnar ekki geta staðfest hvort hinir grunuðu hafi keyrt einstaklinginn upp á Keflavíkurflugvöll til að senda hann úr landi eins og heimildir RÚV herma.