Fræsa og malbika Reykjanesbraut

Malbikun á Reykjanesbraut.
Malbikun á Reykjanesbraut. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Starfsmenn malbikunarverktakans Colas Ísland fræstu og malbikuðu 2,2 km langan kafla á hægri akrein til vesturs á Reykjanesbraut í gær.

Var umferðarhraði tekinn niður á brautinni á meðan starfsmenn höfðu hraðar hendur.

Í dag, milli klukkan 6 og 17, stendur til að malbika áfram á hægri akrein, á milli Vatnsleysustrandarvegar og Vogavegar til vesturs. Kaflinn sá er um 780 metrar að lengd.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka