Kynna drög að nýju Kringlusvæði í Kringlubíó

Umferð akandi, hjólandi og gangandi verður gert jafn hátt undir …
Umferð akandi, hjólandi og gangandi verður gert jafn hátt undir höfði með sérstakri áherslu á gönguvænt umhverfi. Ljósmynd/Aðsend

Áform um uppbyggingu á Kringlusvæði verða kynnt í Ásbergssalnum í Kringlubíói í dag kl. 17.

Verður einnig opnuð sýning á drögum deiliskipulagstillögunar á jarðhæð Kringlunnar meðfram göngugötu hennar, svo almenningur geti kynnt sér þau. 

Fundurinn í dag er öllum opinn og munu Reitir opna fyrir umræður og spurningar um tillöguna sem er í undirbúningi. Að auki verður deiliskipulagslýsing 1.-3. áfanga Kringlunnar aðgengileg í skipulagsgátt þar sem senda má inn athugasemdir á slóð Skipulagsstofnunar.

Skjólgóð og sólrík göturými

Miða drögin að því að á Kringlusvæðinu verði fjölbreytt húsform ásamt nýjum skjólgóðum og sólríkum götu- og torgrýmum, samtvinnuð stærri útirýmum.

Umferð akandi, hjólandi og gangandi verði gert jafn hátt undir höfði með sérstakri áherslu á gönguvænt umhverfi. Meginmarkmið tillögunnar er að móta nýtt og þétt borgarumhverfi. 

„Tillagan miðar að því að skapa manneskjulegt, grænt og skjólgott borgarhverfi sem er undir áhrifum fjölbreytileika reykvískrar byggingarhefðar. Nýtt hverfi mun skapa umgjörð fyrir lifandi nærsamfélag sem mun njóta góðs af mikilli nálægð við úrval verslunar, þjónustu og menningu,“ segir Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlureitar ehf.

Tillagan miðar að því að skapa manneskjulegt, grænt og skjólgott …
Tillagan miðar að því að skapa manneskjulegt, grænt og skjólgott borgarhverfi. Ljósmynd/Aðsend

Gamla Moggaprentsmiðjan verður menningarhús

Eru einnig áform um að hluti gömlu Morgunblaðsprentsmiðjunar á svæðinu verði umbreytt í menningarhús til að hleypa lífi og fjölbreyttri starfsemi í hverfið. 

Drögin að deiliskipulagstillögu 1. áfanga Kringlusvæðis, nær til lóðanna Kringlan 1-3 og Kringlan 5. Höfundar eru danska teiknistofan Henning Larsen ásamt THG arkitektum og er tillagan gerð fyrir Reiti fasteignafélag.

Á fundinum verður farið stuttlega yfir aðdraganda deiliskipulagsgerðar og deiliskipulagslýsingar fyrir áfanga 1-3, en að því loknu munu höfundar fara yfir drög að deiliskipulagstillögu sinni og jafnframt gera grein fyrir þeirri vinnu sem að baki liggur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert