Lagafrumvarp um málefni Grindavíkur samþykkt

Frá Grindavík.
Frá Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alþingi samþykkti í dag lagafrumvarp innviðaráðherra um sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar.

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að framkvæmdanefndin taki formlega til starfa 1. júní nk. þegar lögin taka gildi. Undirbúningur að starfi nefndarinnar er þegar hafinn og skipan hennar verður kynnt innan skamms.

Framkvæmdanefndin mun fara með stjórn, skipulagningu og samhæfingu aðgerða, tryggja skilvirka samvinnu við sveitarstjórn og opinbera aðila og hafa heildaryfirsýn yfir málefnum Grindavíkurbæjar. Verkefnið hefur verið undirbúið í góðu samstarfi við bæjarstjórn Grindavíkur sem óskaði eftir samstarfi um tilhögun og stjórnarfyrirkomulag verkefna við óvenjulegar aðstæður vegna jarðhræringa í Grindavík.

Aðkoma ríkisins gerð skýrari

„Það er mikils vert að Alþingi hafi nú samþykkt lög um stofnun framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur. Með þessum hætti er aðkoma ríkisins gerð skýrari en verið hefur þannig að aukinn árangur náist. Þetta er þýðingarmikið skref í viðleitni okkar að hlúa að íbúum Grindavíkurbæjar og styðja við samfélagið og íbúa Grindavíkur til framtíðar,“ segir Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert