Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrr í morgun skammt frá Laxá í Leirársveit við afleggjarann inn í Hvalfjörð vegna alvarlegra veikinda. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is.
Þyrla gæslunnar lenti á Landspítalann í Fossvogi fyrir skömmu.
Vísir greindi fyrst frá en mikill viðbúnaður var við Vesturlandsveg skammt frá Kjalarnesi þar sem sjúkrabílar og lögreglumenn voru á staðnum og umferð stöðvuð.
Uppfært 13:58 Í upphaflegri frétt stóð að þyrlan hefði verið kölluð út í Borgarfjörð. Það hefur verið leiðrétt og var þyrlan kölluð út skammt frá Laxá í Leirársveit.