Hermann Nökkvi Gunnarsson
Forsetafundur Morgunblaðsins og mbl.is verður í kvöld haldinn með Katrínu Jakobsdóttur á Græna hattinum á Akureyri.
Fundurinn hefst klukkan 19.30 og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Í upphafi fundar stíga álitsgjafarnir Þórhallur Jónsson, verslunarmaður á Akureyri, og Kristrún Lind Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Ásgarðs, á svið og ræða glænýja skoðanakönnun Prósents sem kynnt verður á fundinum í kvöld.
Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson spyrja Katrínu spurninga um forsetaembættið og í kjölfar þess verður opnað fyrir spurningar frá fundargestum.
Er þetta næstsíðasti forsetafundurinn en á fimmtudag verður haldinn forsetafundur með Höllu Tómasdóttur í Reykjanesbæ á Park Inn by Radisson klukkan 19.30.