Bróðir og kærasta viðskiptamannsins Davíðs Viðarssonar, áður Quang Lé, hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald í fjórar vikur eða til 18. júní. Hafa þau öll setið í gæsluvarðhaldi í 12 vikur.
Þetta staðfestir Jón Gunnar Sigurgeirsson, lögreglufulltrúi hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Var gæsluvarðhald yfir Davíð framlengt til 17. júní í gær en þremenningarnir hafa setið í gæsluvarðhaldi síðan lögregla handtók þau í umfangsmiklum aðgerðum þann 5. mars.
Í samtali við mbl.is segir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn, rannsókn miða vel áfram en sé mjög umfangsmikil. Sem dæmi sé mikið af yfirheyrslum og gögnum á erlendum tungumálum sem þarfnist túlka og þýðinga.
Hafa þau öll setið í gæsluvarðhaldi í um 11 vikur en almennar reglur kveða á um að lögregla eða saksóknari gefi út ákæru þegar sakborningar hafa setið í gæslu varðhaldi í 12 vikur. Munu þau þá hafa setið í gæsluvarðhaldi í um 15 vikur þegar gæsluvarðhald rennur út í júní.
Aðspurður segir Jón Gunnar það rétt að 12 vikur séu viðmiðið en við sérstakar aðstæður sé hægt að fara fram yfir þann tíma líkt og í þessu tilfelli.