Úrsögn úr NATO myndi kalla á þjóðaratkvæðagreiðslu

Á forsetafundi Morgunblaðsins og mbl.is á Akureyri í gærkvöldi var Katrín Jakobsdóttir þráspurð hvort hún per­sónu­lega væri með eða á móti veru Íslands í Atlants­hafs­banda­lag­inu (NATO) en hún svaraði því ekki beint.

Hún var þó áköf í svör­um sín­um um að hún myndi fylgja ut­an­rík­is­stefnu Alþing­is.

„Alþingi mót­ar ut­an­rík­is­stefn­una, Alþingi hef­ur mótað þá stefnu að Ísland skuli vera inn­an Atlants­hafs­banda­lags­ins. Sem for­sæt­is­ráðherra hef ég fylgt þeirri stefnu, sem for­seti myndi ég að sjálf­sögðu fylgja þeirri stefnu,“ sagði Katrín.

Ísland er ekki hlut­laust land“

Hún sagði almenning vita vel að hún hefði talað fyrir „friðarstefnu“ allt sitt líf og að hann væri meðvitaður um hennar afstöðu.

„Eins og ít­rekað hef­ur komið fram hjá mér í þess­ari kosn­inga­bar­áttu, raun­ar ólíkt sum­um öðrum fram­bjóðend­um, þá geri ég mér grein fyr­ir því að Ísland er ekki hlut­laust land. Ísland hef­ur mótað af­stöðu og tekið af­stöðu með veru sinni í Atlants­hafs­banda­lag­inu, með stuðningi við Úkraínu sem við höf­um samþykkt á Alþingi Íslend­inga og svona mætti lengi telja.“

Hún gekk svo enn lengra og sagði að ef rík­is­stjórn­ar­meiri­hluti yrði myndaður sem reyndi að taka Ísland úr NATO þá myndi hún vísa því til þjóðar­inn­ar.

„Segj­um sem svo að Alþingi myndaði nú nýj­an meiri­hluta og segði: „Við ætl­um að segja okk­ur úr Atlants­hafs­banda­lag­inu.“ Ég myndi segja, er þetta ekki ákvörðun sem á heima hjá þjóðinni?“ sagði hún og upp­skar lófa­klapp fundargesta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert