Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir fundi um ferðaþjónustuna og virðisaukaskattinn á Berjaya Reykjavík Natura Hótel á milli klukkan 9 og 10.30 í dag.
Á fundinum munu Hagrannsóknir sf. kynna niðurstöður sínar um áhrif hækkunar virðisaukaskatts á ferðaþjónustuna. Þá verða pallborðsumræður á vettvangi stjórnmálanna um niðurstöður skýrslunnar.
Beint streymi frá fundinum:
Ávarp:
Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
Hagrannsóknir sf. kynna skýrslu um áhrif virðisaukaskattshækkana á ferðaþjónustu:
Dr. Birgir Þór Runólfsson
Dr. Marías H. Gestsson
Prófessor Ragnar Árnason
Pallborðsumræður á vettvangi stjórnmálanna:
Lilja D. Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins
Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar