Ólafur Ragnar Grímsson hefur verið sæmdur sérstakri heiðursviðurkenningu fyrir framlag sitt til Loftslagsþings Sameinuðu þjóðanna, COP28, sem haldið var í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í lok síðasta árs.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arctic Circle.
Forseti Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Mohammed bin Zayed Al Nahyan, afhenti Ólafi Ragnari heiðursorðu við athöfn sem fór fram í höfuðborginni Abu Dhabi í gær.
Í byrjun síðasta árs tók Ólafur Ragnar sæti í alþjóðlegri ráðgjafanefnd forseta Loftslagsþingsins og sótti reglulega samráðsfundi í Abu Dhabi til undirbúnings loftslagsþingsins.