Ingvar og Guðný fara yfir stöðu mála

Ingvar Eyfjörð og Guðný Birna verða álitsgjafar á forsetafundi Morgunblaðsins …
Ingvar Eyfjörð og Guðný Birna verða álitsgjafar á forsetafundi Morgunblaðsins og mbl.is í kvöld. Samsett mynd

Ingvar Eyfjörð, fram­kvæmda­stjóri Aðal­torgs ehf., og Guðný Birna Guðmunds­dótt­ir, for­seti bæj­ar­stjórn­ar Reykja­nes­bæj­ar, verða álits­gjaf­ar á opn­um for­seta­fundi Morg­un­blaðsins og mbl.is í Reykja­nes­bæ í kvöld. 

For­seta­fund­ur­inn er hald­inn með Höllu Tóm­as­dótt­ur á Park Inn by Radis­son klukk­an 19.30 og eru all­ir vel­komn­ir á meðan hús­rúm leyf­ir. 

Ingvar og Guðný munu ræða könn­un Pró­sents sem kom út á dög­un­um, fara yfir stöðuna í for­seta­kosn­ing­un­um og spá í spil­in.

Halla á flugi í skoðana­könn­un­um

Andrés Magnús­son og Stefán Ein­ar Stef­áns­son munu stýra fund­in­um og þegar álits­gjaf­arn­ir hafa farið yfir mál­in verður Höllu Tóm­as­dótt­ur boðið upp á svið. 

Andrés og Stefán munu spyrja Höllu um for­seta­embættið og svo verður opnað fyr­ir spurn­ing­ar úr sal frá fund­ar­gest­um. 

Halla hef­ur verið á flugi í skoðana­könn­un­um að und­an­förnu og mun­ar núna inn­an við 6 pró­sentu­stig­um á henni og Katrínu Jak­obs­dótt­ur, sem er með mesta fylgið, í nýj­ustu skoðana­könn­un Pró­sents.

Fylgi fimm efstu frambjóðenda nú og hreyfing fylgisins undanfarnar vikur.
Fylgi fimm efstu fram­bjóðenda nú og hreyf­ing fylgis­ins und­an­farn­ar vik­ur.
mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert