Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um banaslys sem varð við Höfðabakka í Reykjavík þann 10. desember 2022 kemur fram að tveir bílar hafi ekið á karlmann á fimmtugsaldri sem lést og að ökumaður bifreiðarinnar sem ók á hann í fyrra skiptið hafi ekið af vettvangi án þess að tilkynna um atvikið.
Í samantekt skýrslunnar um málið segir að gangandi vegfarandi hafi þverað Höfðabakka rétt sunnan við biðstöð strætisvagna á móts við Árbæjarsafn. Á sama tíma hafi bifreið verið ekið Höfðabakka til suðurs og á gangandi vegfarandann og hafi ökumaðurinn ekið af vettvangi án þess að tilkynna um atvikið. Vegfarandinn lá á eystri akrein Höfðabakka. Engin vitni að slysinu hafa gefið sig fram.
Stuttu síðar var Suzuki-fólksbifreið ekið Höfðabakka til norðurs. Þegar ökumaður bifreiðarinnar kom auga á vegfarandann liggjandi á götunni, sveigði hann til vinstri en náði ekki að forðast árekstur við vegfarandann. Á vestari akrein, með akstursátt til suðurs Höfðabakka, var Toyota-fólksbifreið á litlum hraða og lenti á Suzuki-bifreiðin á hlið hennar þegar henni var beygt frá vegfarandanum.
Vegfarandinn sem ekið var á lést á Landspítala seinna um nóttina af völdum fjöláverka. Ökumaður Suzuki-bifreiðarinnar slasaðist ekki en ökumaður Toyota-bifreiðarinnar hlaut smávægilega áverka. Báðir ökumennirnir voru í bílbelti.
Fram kemur í skýrslunni að niðurstaða úr áfengis-og lyfjarannsókn á ökumanni Suzuki-bifreiðarinnar hafi verið neikvæð en niðurstaða áfengisrannsóknar á gangandi vegfarandanum hafi verið jákvæð.
Samkvæmt upptöku úr mælaborðsmyndavél Suzuki-bifreiðarinnar var hraði hennar 74 km/klst skömmu fyrir slysið. Þegar slysið varð hafði orðið hraðaminnkun en samkvæmt GPS-mældum hraða í mælaborðsmyndavél var bifreiðinni ekið á 70 km/klst hraða á vegfarandann.
Í krufningarrannsókn kom fram áverki á hægri lærlegg vegfarandans sem sýni að ekið hafi verið á hann standandi. Samkvæmt rannsókn samræmist sá áverki ekki þeim áverkum sem hann hlaut þegar ekið var á hann liggjandi á götunni.
Áverkar vegfarandans sýndu að búið hafi verið að aka á hægri lærlegg hans þegar hann var standandi áður en Suzuki-bifreiðinni var ekið á hann liggjandi í götunni.
Í niðurstöðum um meginorsök slyssins segir:
„Í krufningarrannsókn kom fram áverki á hægri lærlegg sem er í samræmi við að ekið hafi verið á vegfarandann standandi, og sennilega á gangi yfir Höfðabakka, skömmu áður en Suzuki bifreiðinni var ekið á hann. Af þeim orsökum lá vegfarandinn slasaður á miðri eystri akreininni þegar ekið var á hann í seinna skiptið.“
Þar segir einnig að ökumaður Suzuki-bifreiðarinnar hafi ekið um 14 km/klst yfir leyfðum hámarkshraða þegar slysið varð og hafi því haft skemmri tíma en ella til að bregðast við þegar hann veitti vegfarandanum athygli.
Þá kemur fram í skýrslunni að vegfarandinn hafi farið áleiðis yfir Höfðabakka en ekki öruggari leið í gegnum undirgöng sem hann hafði áður almennt notað.