„Þetta er auðvitað alvarlegt ef það er ekki skýrt, þessir skilmálar, og mikilvægt að bankarnir taki það til sín og lagi. Svo verður svolítið að koma í ljós hvaða afleiðingar það hefur,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í samtali við mbl.is um niðurstöðu EFTA-dómstólsins.
Í gær komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að orðalag skilmála í lánssamningum banka með breytilegum vöxtum á Íslandi sé ekki gegnsætt. Almennir neytendur verði með fullnægjandi fyrirsjáanleika getað áttað sig á þeim skilyrðum og þeirri málsmeðferð sem liggi til grundvallar vaxtabreytingum.
Blaðamaður mbl.is ræddi við Sigurð um þetta að ríkisstjórnarfundi loknum.
Kom þessi úrskurður þér á óvart?
„Satt best að segja þá hefur maður aðeins heyrt að skilmálarnir séu aðeins óljósir og mismunandi. En ég held að það sé mikilvægt að setjast yfir það og kanna hversu misjafnir þeir eru,“ segir hann og bætir við að hann viti til þess að Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hafi verið að skoða það.
Hann segir mikilvægt að bankarnir taki dómnum alvarlega og segir einnig mikilvægt fyrir neytendaverndina að fólk vita almennilega hverjir skilmálarnir og upplýsingar séu þegar það tekur lán.
EFTA-dómstóllinn segir að varðandi þær skýrleikakröfur sem gera verði til samningsskilmála um breytilega vexti í fasteignalánasamningi að túlka verði 5. gr. tilskipunar 93/13 þannig að ekki aðeins skuli slíkur skilmáli vera formlega og málfræðilega skiljanlegur, heldur einnig gera hinum almenna neytanda, sem teljist sæmilega vel upplýstur, athugull og forsjáll, kleift að skilja þá tilteknu aðferð sem beitt er við ákvörðun vaxtanna.
„Neytandinn þarf að vera í aðstöðu til að meta, út frá skýrum, hlutlægum og skiljanlegum viðmiðum, mögulega umtalsverðar afleiðingar slíks skilmála á fjárhagslegar skuldbindingar sínar,“ segir í fréttatilkynningu frá dómstólnum.