Breyting var á stjórn Landverndar á aðalfundi í Grafarvogi í gær. Kosið var um fimm af tíu fulltrúum stjórnarinnar. En Þorgerður María Þorbjarnardóttir heldur áfram sem stjórnarformaður.
Aðrir stjórnarmenn:
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, loftslags-, og orkumálaráðherra ávarpaði fundinn, en Bjarni Bjarnason fyrrverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og ráðgjafi Landverndar var aðalgestur fundarins og ræddi orkumál.
Snæbjörn Guðmundsson og Christina Macrander hlutu sérstaka viðurkenningu Landverndar í náttúru- og umhverfivernd fyrir störf sín og árangur í umhverfis- og loftslagsmálum.
Snæbjörn var um tíð formaður Landverndar, en veitir nú forystu samtökunum Náttúrugrið sem hafa náð miklum árangri í náttúruvernd á síðustu misserum.
Christina hefur sýnt mikla þrautseigju í loftslagsmálum og tekið þátt í þeim í langa tíma þrátt fyrir ungan aldur.