Í dag mældist 21,5 stiga hiti á Húsavík. Tuttugu gráðu múrinn var brotinn víða á Norðausturlandi í dag og búast má við svipaðri hlýju á morgun, að sögn veðurfræðings.
Hlýjast hefur verið á Húsavík í dag en hitastig hefur einnig verið hátt víða í Eyjafirði og náð 18 gráðum á Akureyri. Næstheitast hefur verið við Rauðanúp rétt norður af Melrakkasléttu.
„Þetta er eiginlega dagurinn í dag og morgundagurinn,“ segir Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, spurður hvort búast megi við svipuðum tölum næstu daga.
Á morgun má aftur á móti búast við aðeins mildara veðri fyrir norðan, þar sem vindurinn verður líklega hægari. Hafgola myndi þannig blása hlýja vindinum suður inn í landið, en samt ekki nógu langt suður til þess að Sunnlendingar njóti góðs af því, að sögn Óla.
Enn má búast við hlýindaveðri á mánudag og þriðjudag, þó ekki eins háum tölum.
Á suðurhluta landsins er ekki gert fyrir eins miklu blíðindaveðri og hefur verið fyrir norðan í dag. Búast má við hátt í 13 gráðum í Reykjavík og Keflavík í dag. Á Vestfjörðum er einnig hlýindaveður, hátt í 16 gráður á Ísafirði og Hólmavík.
Núll gráður mældust á Bárðarbungu í dag, sem er það kaldasta sem mælst hefur í dag, samkvæmt veðurvefnum Bliku.