Halla Tómasdóttir kvaðst á forsetafundi Morgunblaðsins og mbl.is ekki vera hlynnt því að íslensk stjórnvöld styddu vopnakaup til Úkraínu, sem verst áfram gegn ólöglegri innrás Rússlands. Hún vildi frekar að Ísland fjármagnaði sáraumbúðir frá Kerecis og stoðtæki frá Össuri.
„Ég er hlynnt því að við tökum alltaf afstöðu með friði og nýtum öll okkar áhrif til þess að fara fyrir friði. Við erum í varnarbandalagi – varnarbandalagi er lykilorð – ekki sóknarbandalagi með Atlantshafsbandalaginu og það er mín skoðun að við getum verið þátttakendur í því og vestrænu samstarfi án þess að leggja fé til vopnakaupa,“ sagði Halla á forsetafundinum sem var haldinn í Reykjanesbæ í gærkvöldi.
Í mars greindi utanríkisráðuneytið frá því að Ísland myndi styðja við innkaup Tékklands á skotfærum fyrir Úkraínu og leggja fjármuni í kaup á búnaði fyrir konur í úkraínska hernum.
„Fjármagnið sem við leggjum til í þessu tilfelli er svo lítið að það breytir engu. Við erum pínulítil þjóð og við getum látið miklu meira finna fyrir okkur með því að velja frið. Ég er ekki að segja að þetta sé einfalt,“ sagði Halla.
Halla er forstjóri B Team og sagði hún að fyrirtæki sem vinna með B Team hafi verið með fyrstu fyrirtækjunum til að yfirgefa Rússland eftir að þeir réðust inn í Úkraínu.
„Það er ekki sjálfsagt að kaupa vopn, það er ekki sjálfsagt og Íslendingar úti um allt land hafa tekið undir með mér,“ sagði Halla.
Stefán sagði að það þyrfti vopn til að verjast Rússum og þá sagði Halla:
„Já og það eru margar þjóðir – í rauninni allar – að skipa sér í lið í þessu stríði, í Mið-Austurlöndum, í sautján stríðum í Afríku og það eru stríð úti um allan heim. Við getum verið litla þjóðin sem lyftir grettistaki í heiminum með því að velja frið,“ sagði hún.
Horfðu á forsetafundinn í heild sinni: