Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í kvöld að beiðni lögreglunnar á Suðurlandi vegna manns sem hafði slasast á víðavangi í Rangárþingi.
Maðurinn var fluttur með bíl á flugvöllinn á Selfossi til móts við þyrluna sem flutti hann til Reykjavíkur þar sem hún lendi við Landspítalann nú á ellefta tímanum.
„Við vitum ekki nákvæmlega hvað gerðist og hversu alvarleg meiðslin eru. Ekki var um umferðarslys að ræða heldur slys á víðavangi,“ segir Þorsteinn Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Selfossi, við mbl.is.
Þorsteinn segir að málið sé þegar komið til rannsóknar hjá lögreglu.