Tveggja bíla árekstur varð á Reykjanesbraut, norðan álversins í Straumsvík, á sjötta tímanum í dag. Umferðartafir eru um veginn á meðan viðbragðsaðilar athafna sig.
Nokkrir sjúkrabílar voru sendir á vettvang ásamt dælubíl.
Fjórir voru fluttir af vettvangi með sjúkrabíl og eru þeir til skoðunar á slysadeild Landspítalans. Þetta segir Stefán Már Kristinsson, hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is en hann segir að ekki hafi verið um háalvarlega áverka að ræða.
Fréttin hefur verið uppfærð.