„Í okkar huga eru þessi tímamót aðgengismál, það er verið að tryggja aðgengi óháð efnahag að þessari mikilvægu þjónustu,“ segir Gunnlaugur Már Briem, formaður Félags sjúkraþjálfara, um nýjan samning félagsins við Sjúkratryggingar Íslands.
Nýr samningur Félags sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands var undirritaður á dögunum en sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar hafa starfað án samnings frá því í janúar 2020.
Með nýja samningnum mun kostnaður sjúklinga lækka og samhliða því munu aukagjöld falla niður og Sjúkratryggingar Íslands hefja að greiða eftir uppfærðri gjaldskrá.
Að sögn Gunnlaugs mun samningurinn bæta aðgengi og hag þeirra sem þurfa á sjúkraþjálfun að halda, sérstaklega þeirra sem þarfnast mikillar þjónustu, á sama tíma og gjaldskráin auki möguleika sjúkraþjálfara til mæta fjölbreyttum þörfum skjólstæðinga.
mbl.is hefur borist ábendingar um að einhverjir starfandi sjúkraþjálfara séu ósáttir að það sé meðal annars markmið samnings þessa að sem flestir sjúkraþjálfarar starfi innan formlegra starfsheilda.
Í samningnum segir: „Starfsheildir skulu vera lögaðilar, í meirihlutaeigu starfandi heilbrigðisstarfsmanna, sem viðkomandi sjúkraþjálfarar hafa samningssamband við.“
En við upphaf samnings er miðað við að innan starfsheildar starfi að lágmarki sjö sjúkraþjálfarar.
„Það er ekki óeðlilegt að einhverjum hugnist ekki samningur. Af þeim sem kjósa, þá kjósa 91% með samningnum. Það segir okkur að það sé almennt góð sátt með samninginn í heild sinni og fyrirkomulag hans. En auðvitað er ýmislegt sem á eftir að þróa og vinna að. Nánari viðmið og fyrirkomulag starfsheilda eru hluti af þeirri þróunarvinnu þar sem meðal annars verður horft til endurskoðunar á lágmarksfjölda. Upphafsviðmiðin eru innleiðingarviðmið til að styðja við að innleiðing samningsins geti gengið sem best fyrir sig,“ segir Gunnlaugur.
Hann segir að í samningnum komi fram sjúkraþjálfarar geti einnig starfað á minni stofum, einkum utan stærri þéttbýlisstaða. Þannig geti þeir uppfyllt kröfur til starfsheilda með samstarfssamningi við aðra starfsheild.
Einnig segir hann að vert sé að benda á að hugmyndin að baki starfsheildum sé að skapa umgjörð til að efla gæðastarf og upplýsingaöflun um þessa þjónustu, líkt og unnið er að útfærslum einnig við aðrar fagstéttir. Áfram verði lögð áhersla á að öllum sé frjálst að starfa utan starfsheilda og á sama tíma skapa öflugt umhverfi fyrir sjúkraþjálfara til að starfa innan og veita þjónustu.