Bandarískur ferðamaður að nafni Melanie, sem var á leiðinni á flugvöllinn þegar fór að gjósa, segir tímasetninguna hafa verið fullkomna. Hún hafi verið að binda endahnút á tíu daga ferð um landið.
Hún segist ekki hafa búist við því að sjá neitt þessu líkt á meðan hún væri á landinu.
„Með sjónauka gátum við séð rautt hraunið spýtast upp, ég bjóst ekki við að sjá þetta á minni lífstíð,“ segir Melanie í samtali við mbl.is.
Eldgos er hafið að nýju á Reykjanesskaga, það er það áttunda á skaganum á rúmum þremur árum og um leið það fimmta til að brjótast út á aðeins rúmu hálfu ári, frá því fyrst gaus í Svartsengiskerfinu þann 18. desember.
Fylgjast má með nýjustu vendingum í beinni með því að smella á fréttina hér að neðan.