Eins og staðan er núna mun Suðurstrandarvegur ekki lokast vegna hraunflæðis í nótt. Þó er það háð því að hraunflæði verði samt eða minna út nóttina.
Þetta staðfestir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi almannavarna í samtali við mbl.is.
Þá segir hún stöðuna ekki hafa litið vel út í dag en blessunarlega hafi hægst á hraunflæði og varnargarðarnir staðið fyrir sínu. Fyrr í dag höfðu allir vegir til Grindavíkur lokast vegna hraunflæðis nema Suðurstrandarvegur.
„Það eru svona jákvæðu fréttir dagsins,“ segir Hjördís og játar því að það hafi verið magnað að sjá varnargarðana standa fyrir sínu.
Fyrr í kvöld ræddi mbl.is við Víði Reynisson, sviðsstjóra almannavarna þar sem hann tók í sama streng og sagði einfaldlega að varnargarðarnir hefðu bjargað Grindavík.
„Grindavík hefði varla verið til eftir þennan dag hefðu varnargarðarnir ekki verið,“ sagði Víðir.