Þórkatla aflýsir skilafundum í Grindavík

Frá Grindavík.
Frá Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fasteignafélagið Þórkatla hefur í ljósi aðstæðna í Grindavík aflýst öllum skilum á eignum til félagsins sem fara áttu fram í vikunni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórkötlu en þar segir að allir þeir sem boðaðir höfðu verið á fund félagsins hafi fengið skilaboð þess efnis.

„Töluverður fjöldi sérfræðinga á vegum Þórkötlu var staddur í Grindavík í dag þegar rýming hófst og fylgdu þeir leiðbeiningum almannavarna um að halda þegar í stað burt úr bænum. Þórkatla fylgist áfram náið með þróun mála og mun laga verkferla sína að aðstæðum á meðan ekki er óhætt að vera í Grindavík,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að hugur starfsfólks Þórkötlu sé hjá bæjarbúum, fólki sem starfi í nágrenninu og þeim öflugu viðbragðsaðilum sem stýri aðgerðum á vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert