Fjölskylda í fæðingarorlofi vann 8,5 milljónir

Fjölskylda í fæðingarorlofi var með allar tölurnar réttar þegar dregið var í lottó um liðna helgi en fjölskyldan hlaut 8,5 milljónir í vinning. 

„Ég er bara ennþá ekki að trúa þessu,“ er haft eftir ungri tveggja barna móður í tilkynningu sem Íslensk getspá sendi af þessu tilefni. 

Fram kemur að fjölskyldan sé nýflutt á höfuðborgarsvæðið og hafi fest kaup á eigin húsnæði ekki alls fyrir löngu.

Haft er eftir konunni að vinningurinn muni auðvelda þeim að standsetja nýju íbúðina eftir eigin höfði og láta draumana um frekara nám mögulega rætast og kannski komast í langþráð frí.

„Sú heppna sagðist alltaf spila með 10 raðir í appinu en að þessu sinni hefði hún bætt við aukamiða með fimm röðum. Hún fékk tilkynningu í appinu um þrjá rétta á aðalmiðanum en þegar hún rýndi í aukamiðann kom stóri vinningurinn í ljós,“ segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert