Margrét nýr framkvæmdastjóri Bændasamtakanna

Margrét Ágústa tekur við starfinu í Ágúst.
Margrét Ágústa tekur við starfinu í Ágúst. Ljósmynd/Aðsend

Margrét Ágústa Sigurðardóttir mun taka við starfi framkvæmdastjóra Bændasamtakanna 1. ágúst af Örvari Þór Ólafssyni.

Hefur nýkjörin stjórn samtakanna gengið frá ráðningunni en alls sóttu 28 manns um stöðuna.

Örvar tók tímabundið við hlutverkinu í byrjun apríl samhliða störfum sínum sem fjármálastjóri samtakanna.

Þetta kemur fram í tilkynningu Bændasamtakanna.

Lögfræðingur að mennt

Margrét Ágústa er lögfræðingur með meistaragráðu úr lagadeild Háskóla Íslands og LL.M gráðu í evrópskum og alþjóðlegum skattarétti frá Háskólanum í Lundi.

Síðustu sex ár hefur hún starfað hjá PwC á skatta- og lögfræðisviði en þar áður um árabil hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og yfirskattanefnd. Þá er Margrét Ágústa umsjónarkennari alþjóðlegs skattaréttar við Háskólann á Bifröst.

Sérþekking sem muni nýtast

„Það er afar ánægjulegt að fá Margréti Ágústu til þessa starfs. Ég er ekki í nokkrum vafa um að lögfræðileg sérþekking hennar, m.a. í skatta- og Evrópurétti, auk tollalöggjafar bæði hérlendis og erlendis, mun nýtast okkur með margvíslegum hætti. Stjórn Bændasamtakanna er staðráðin í að taka hraustlega til hendinni á næstu misserum og árum. Margrét Ágústa á eftir að verða dýrmætur liðsauki í þeim verkefnum,“ er haft eftir Trausta Hjálmarssyni, formanni Bændasamtakanna, í tilkynningunni.

„Frá blautu barnsbeini hef ég borið djúpa virðingu fyrir bændum og störfum þeirra. Mér þykir því sérstaklega vænt um það traust sem mér hefur verið sýnt með þessari ráðningu. Engum dylst mikilvægi þess að íslenskur landbúnaður geti áfram staðið vörð um afdráttarlaus gæði og hreinleika framleiðslu sinnar ásamt því að gegna lykilhlutverki í fæðuöryggi þjóðarinnar,“ er haft eftir Margréti Ágústu.

Hún segir fjölmörg sóknarfæri blasa við og að í þeim efnum geti Bændasamtökin skipt miklu máli. 

„Ég er full tilhlökkunar að bretta upp ermar og taka kröftugan þátt í því mikilvæga verkefni ásamt starfsfólki og stjórn samtakanna. Ekki síður hlakka ég til þess samtals og samstarfs við bændur sem bíður mín í takti við þá áherslu stjórnarinnar að grasrótin stýri ávallt ferðinni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka