Breytingar á leiðakerfi Strætó taka gildi sunnudaginn 2. júní, en þá mun Strætó hætta akstri um Hlemm vegna framkvæmda. Tímabundnar endastöðvar taka við þeirri á Hlemmi, en breytingarnar hafa áhrif á 14 akstursleiðir Strætó.
Ný tímabundin endastöð fyrir leiðir 1, 4, 16, 17 og 18 rís við Skúlagötu. Endastöð leiða 2 og 6 verður við Háskóla Íslands og leið 3 mun hafa endastöð við Granda, þar sem leið 14 hefur nú þegar endastöð.
Í tilkynningu Strætó kemur fram að breytt skipulag svo taki við að framkvæmdum loknum. Strætóleiðir muni fyrst um sinn nýta innviði sem ætlaðir séu Borgarlínu við Hlemm, en í áætlunum Borgarlínunnar er gert ráð fyrir því að engin akstursleið muni eiga endastöð á Hlemmi.
Jafnframt er ekki gert ráð fyrir einni miðlægri endastöð, en 4 leiðir munu þó áfram aka í gegnum Hlemm í framtíðinni.