„Ég er ánægður með þetta ferðalag“

Arnar Þór greiddi atvkæði í FG kl. 9 í morgun.
Arnar Þór greiddi atvkæði í FG kl. 9 í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það var gaman að kjósa og taka þetta lokaskref á þessari löngu leið,“ segir Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi í samtali við mbl.is, en hann greiddi atkvæði í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ kl. 9 í morgun.

Arnar Þór hefur varið deginum á kosningaskrifstofu sinni. Hann segir fjölda fólks hafa komið þangað í kaffi í dag. 

„Núna er þetta bara í höndum þjóðarinnar og ég bara tek því sem að höndum ber. Ég get ekki gert meir,“ segir Arnar Þór.

Arnar mætti á kjörstað ásamt eiginkonu sinni.
Arnar mætti á kjörstað ásamt eiginkonu sinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ánægjuleg reynsla

Arnar Þór verður með kosningavöku í Ármúla 15 í kvöld. Hann segir alla velkomna þangað.

Hann segir kosningabaráttuna hafa verið þroskandi. Eðlilega hefur mikið verið að gera hjá Arnari síðustu vikur og segist hann því ætla að hvíla sig vel í næstu viku.

„Ég er ánægður með þetta ferðalag. Þetta hefur verið góð og ánægjuleg reynsla. Þetta hefur verið þroskandi á margan hátt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert