Inga Þóra Pálsdóttir
Það er heldur betur gleðidagur á Seltjarnarnesi í dag, en álft, sem talið er að sé álftin Svandís Sigurgeirsdóttir, eignaðist unga í dag. Talið er að þeir séu fjórir talsins.
Myndskeið af Svandísi og ungunum má sjá í spilaranum hér að ofan.
Svandís varð landsþekkt árið 1994 þegar hún sást hreiðra um sig í Sigurgeirshólma sem þá hafði nýlega verið reistur í Bakkatjörn. Hólminn var nefndur í höfuðið á Sigurgeiri Sigurðarsyni, fyrrverandi bæjarstjóra Seltjarnarness, sem lét reisa hann.
Síðasta sumar eignaðist Svandís tvo unga en þeir voru annað hvort étnir eða drepnir innan sólarhrings frá fæðingu.
Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, segir þessa fjölgun Svandísar ánægjulega. Hann vonast til að ungarnir fái að vera í friði.
„Nú vonum við að þetta gangi vel,“ segir Þór í samtali við mbl.is.