Katrín: „Þetta geri ég ekki aftur“

Katrín á kosningavöku sinni í kvöld.
Katrín á kosningavöku sinni í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi óskar Höllu Tómasdóttur til hamingju með sigurinn.

„Það falla öll vötn til Dýrafjarðar hér. Mér sýnist nú Halla Tómasdóttir stefna hraðbyri í að verða næsti forseti Íslands,“ sagði Katrín í viðtali við ríkisútvarpið nú rétt í þessu.

Því næst óskaði hún Höllu til hamingju með sigurinn og sagði hana verða flottan næsta forseta Íslands. 

Spurð hvort hún gæti hugsað sér að fara aftur í forsetaframboð svaraði hún neitandi. 

„Þetta geri ég ekki aftur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert