Má mikið breytast ef Halla verður ekki forseti

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. mbl.is/Eyþór

„Það má eitthvað mikið breytast verði raunin ekki sú að Halla Tómasdóttir verði næsti forseti Íslands,” sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, í sjónvarpssal, beðinn um að meta stöðuna í forsetakosningunum.

„Það er ekki við hæfi að flytja hamingjuóskir alveg strax en þetta er líka óvænt miðað við það sem maður hélt að myndi gerast í kvöld og nótt að þetta yrði jafnari leikur. Ég kom ekki með neinn klút með mér til dæmis,” bætti hann við.

Halla Tómasdóttir.
Halla Tómasdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Katrín Jakobsdóttir sem er í öðru sæti eins og sakir standa núna hefur væntanlega goldið þess, eða það hefur verið á brattann að sækja hjá henni, vegna þess hvernig aðdragandinn er að hennar framboði.”

Katrín Jakobsdóttir í forsetakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is.
Katrín Jakobsdóttir í forsetakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert