„Við erum bara rétt að byrja“

Halla Hrund ávarpaði viðstadda í Hörpu.
Halla Hrund ávarpaði viðstadda í Hörpu. mbl.is/Arnþór

Út brutust mikil fagnaðarlæti í Hörpu nú fyrir skömmu þegar Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi mætti á kosningavöku sína. 

„Ef hávaðinn hérna inni væri eins og fylgið þá værum við búin að vinna þessar kosningar,“ sagði Halla Hrund við stuðningsfólk sitt.

Halla Hrund Logadóttir í Björtuloftum í kvöld.
Halla Hrund Logadóttir í Björtuloftum í kvöld. mbl.is/Arnþór

Fyrsta kosningabaráttan

Þá kvaðst hún bara vera rétt að byrja.

„Þetta er mín fyrsta kosningabarátta. Við komum ný inn á sviðið. Við erum búin að byggja upp þetta samfélag sem að stendur fyrir eitthvað og sem ætlar að vinna að ákveðnum málum og við erum bara rétt að byrja.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert