Ferðalangar fundu látinn mann í Þórsmörk í gærkvöldi.
Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir í samtali við mbl.is að ekki sé talið að maðurinn hafi látist með saknæmum hætti, en ríkisútvarpið greindi fyrst frá.
Jón Gunnar segir að lögreglan á Selfossi rannsaki nú málið en hann kveðst að öðru leyti ekki geta tjáð sig um málið.