Vinstri græn munu styðja nýtt útlendingafrumvarp, segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður flokksins. Hann býst einnig við því að frumvarp um stofnun mannréttindastofnunar verði samþykkt áður en þingmenn fara í sumarfrí.
Útlendingafrumvarp Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra var afgreitt úr allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis í dag. Brugðist var við athugasemdum frá umboðsmanni barna en annars voru engar breytingar á frumvarpinu gerðar.
„Já, við munum styðja útlendingafrumvarpið,“ svarar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, aðspurður að loknum fundi ríkisstjórnarinnar í dag.
„Það eru mörg mikilvæg mál í þinginu núna og mikilvægt að við náum að klára ýmis framfaramál. Þar er ég ekki síst að vísa meðal annars til stórra umbóta á örorkulífeyriskerfinu. Mig langar líka þá að nefna mannréttindastofnun,“ segir Guðmundur Ingi enn fremur.
Ísland er eitt af fimm Evrópuríkjum sem ekki hafa sjálfstæða mannréttindastofnun, að sögn Guðmundar. „Það gengur ekki í mínum huga. Við verðum að klára það mál og ég sé ekki betur en að það eigi að takast í vor.“
Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, lagði fram frumvarp fyrir nokkrum mánuðum um stofnun mannréttindastofnunar. En málið hafði lengi setið á hakanum í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og hefur það tekið langan tíma að taka það til efnislegrar umræðu. Það gerðist þó loksins í maí.
Væntirðu einhverra frekari tíðinda í þessum efnum núna frekar en áður?
„Já. Það er frekari tíðinda að vænta enda hef ég lagt ríka áherslu á það að við klárum þetta í vor.“