Skúli skipaður dómari við Hæstarétt

Skúli Magnússon hefur starfað sem umboðsmaður Alþingis frá árinu 2021.
Skúli Magnússon hefur starfað sem umboðsmaður Alþingis frá árinu 2021. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, hefur verið skipaður dómari við Hæstarétt frá og með 1. október næstkomandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Skúli hefur lokið embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu við lagadeild Oxford-háskóla. Þá hefur hann einnig héraðsdómslögmannsréttindi.

„Að námi loknu starfaði Skúli meðal annars sem dómarafulltrúi við Héraðsdóm Reykjaness og sem aðstoðarmaður dómara við Hæstarétt Íslands þar til hann tók við stöðu lektors við lagadeild Háskóla Íslands árið 2000 og síðar stöðu dósents 2002. Í ársbyrjun 2004 var hann skipaður héraðsdómari og gegndi því starfi til 2007 er honum var veitt leyfi til að taka við starfi skrifstofustjóra EFTA-dómstólsins. Hann tók á ný við embætti héraðsdómara árið 2012 og árið 2021 var hann skipaður dómstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur. Hann hefur einnig verið settur dómari við Landsrétt um skeið og tekið sæti sem varadómari við Hæstarétt Íslands og verið varadómari við Mannréttindadómstól Evrópu,“ segir í tilkynningunni.

Skúli hefur starfað sem umboðsmaður Alþingis síðan árið 2021.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert