Tómas A. Tómasson, þingmaður Flokks fólksins, hyggst setja upp klút til heiðurs Höllu Tómasdóttur, nýkjörins forseta Íslands, alla daga í þessari viku.
Þetta sagði Tómas þegar hann steig í pontu á Alþingi í dag en klútar sem Halla bar um hálsinn í kosningabaráttunni hafa vakið mikla athygli.
Halla Tómasdóttir kom, sá og sigraði í forsetakosningunum á laugardaginn með klút um hálsinn og í ljósri dragt.
Töluverðar umræður hafa spunnist í kringum klútana en Halla var með klút í fyrstu kappræðum Rúv því hún var veik og vaknaði algjörlega raddlaus um morguninn.