Húsvíkingur skellti sér í sólbað út á svölum þrátt fyrir appelsínugula viðvörun. Hann segir fréttir af veðrinu aftur á móti ekki ýktar. Það sé samt alltaf gott veður á Húsavík.
Hjálmar Bogi Hafliðason er deildarstjóri í Borgarholtsskóla á Húsavík og sveitarstjórnarfulltrúi í Norðurþingi. Í gær birti hann mynd af sér á Facebook-síðu sinni þar sem hann sat úti á svölum heima hjá sér í sólbaði.
Yfirleitt væri þetta ekki frásögu færandi en síðasta sólarhringinn hefur appelsínugul viðvörun frá Veðurstofunni ríkt á Húsavík.
Við myndina skrifar Hjálmar: „Það er alltaf gott veður á Húsavík. Sem betur fer dregur annað slagið fyrir sólina til að kæla sig.“
Aðspurður hvort fréttir af óveðri fyrir norðan séu ýktar segir Hjálmar svo ekki vera: „Heyrðu, þær eru ekki ýktar. Ég skal gangast við því.“
Jafnframt segir hann það þó ekki ýkjur að veðrið sé yfirleitt gott á Húsavík en sú var einmitt kveikjan að myndinni.
„Í tölvupóstum segi ég mjög oft eitthvað eins og „kveðjur úr kvöldsólinni á Húsavík“ eða „góða veðrinu á húsavík“. Kollegi minn sem er skólastjóri á Akranesi er orðinn leiður á að fá þessa pósta frá mér og sendi mér þess vegna skilaboð í gær og spurði hvernig veðrið væri núna á Húsavík í ljósi þess að það var eins og það var,“ segir Hjálmar.
„Þess vegna birti ég þetta, fór út á svalir, klæddi mig upp á og henti í þessa mynd,“ segir Hjálmar en bætir við að veðrið hafi vissulega verið ágætt þegar myndin var tekin.