Rannsókn á banaslysi við Óshlíðarveg árið 1973 hefur verið hætt. Ríkissaksóknari staðfesti ákvörðun lögreglunnar á Vestfjörðum um að hætta rannsókninni en málið var tekið upp að nýju árið 2022. Ríkisútvarpið greinir frá ákvörðun ríkissaksóknara.
Kristinn Haukur Jóhannesson lést aðeins nítján ára gamall af slysförum á veginum um Óshlíð á milli Bolungarvíkur og Hnífsdals í Ísafjarðardjúpi 23. september 1973.
Atvikið var á sínum tíma rannsakað sem umferðarslys, en í aprílmánuði 2022 óskuðu nánustu ættingjar hins látna eftir því að málið yrði tekið upp á ný þar sem rannsókn málsins hefði verið ábótavant.
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hafnaði þeirri beiðni sökum þess að engin ný gögn hefðu borist. Ættingjar kærðu þá ákvörðun til ríkissaksóknara sem lagði fyrir lögregluna á Vestfjörðum að skoða ákveðna þætti.
Í maí 2022 voru upp líkamsleifar Kristins grafnar upp og voru þær rannsakaðar af réttarlækni að beiðni lögreglunnar á Vestfjörðum.
Í október á sama ári ákvað lögreglustjórinn á Vestfjörðum að hætta rannsókninni og vísaði þá til þess að niðurstaða rannsóknar benti ekki til annars en að farþeginn hefði látist af afleiðingum umferðarslyss.
Í febrúar 2023 felldi ríkissaksóknari ákvörðun lögreglu úr gildi og fyrirskipaði lögreglunni á Vestfjörðum að rannsaka málið frekar, í annað skipti.
Átti þá lögreglan að taka afstöðu til nýrra gagna og á grundvelli þeirra meta hvort að tilefni væri til frekari rannsóknargerðar.
Í umfjöllun RÚV um málið kemur fram að lögreglan hafi aftur komist að sömu niðurstöðu og hætt rannsókn málsins í júlí í fyrra. 30. nóvember síðastliðinn hafi ríkissaksóknari loks staðfest ákvörðun lögreglu, og rannsókn því hætt.
RÚV vitnar í samtal við Helga Jensson, lögreglustjóra á Vestfjörðum, sem segir nýju gögnin sem lögregla hafi verið beðin um að rannsaka hafi aðallega verið greinargerð frá bifvélavirkjameistara. Útkoman hafi verið sú sama og greinagerðin engu breytt.
Vegurinn um Óshlíð var opnaður árið 1950 og var almennt talinn einn sá hættulegasti á landinu. Þar fórust á annan tug manna þar til vegurinn vék fyrir Bolungarvíkurgöngunum sextíu árum síðar.
Þar töpuðust mannslíf vegna snjóflóða, grjóthruns og útafaksturs. Árið 1973 var engin lýsing á veginum.
Kristinn fannst látinn fyrir neðan Óshlíðarveginn og lá fyrir ofan bifreið sem var neðar í fjörunni. Ökumaðurinn og annar farþegi fóru fótgangandi inn í Hnífsdal og tilkynntu um að bifreið sem þau voru í, ásamt Kristni, hefði farið út af veginum.