Þyrlusveitin sinnti þremur útköllum fyrir hádegi

Þyrlusveitin hefur sinnt þremur útköllum það sem af er degi.
Þyrlusveitin hefur sinnt þremur útköllum það sem af er degi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur sinnt þremur útköllum það sem af er degi. 

Fyrsta útkall dagsins var laust eftir klukkan sex í morgun og var vegna veikinda um borð á bresku rannsóknarskipi. Skipstjórinn hafði samband við stjórnstöð Gæslunnar í gærkvöldi og var skipið þá statt um 300 sjómílur suður af landinum. 

Gæslan greinir frá þessu á Facebook.

Í færslunni á Facebook kemur fram að skipstjóranum hafi verið bent á að halda í átt að landi og að þyrla yrði kölluð út þegar skipið væri komið nær Íslandi.

Þyrlan lagði af stað í morgun og var flogið í 6.000 feta hæð. Þegar þyrlan nálgaðist skipið fór þyrlusveitin yfir það hvernig staðið yrði að hífingum og veitti leiðbeiningar um stjórntök og undirbúning. 

Þegar þyrlusveitin kom að skipinu var það um 115 sjómílur suður af landinu. Vel gekk að hífa sjúklinginn um borð, að því er fram kemur á Facebook, og var honum komið undir læknishendur í Reykjavík í kjölfarið.

Skúta í vanda

Þá lenti skúta með tólf manna áhöfn í vanda um 60 sjómílum suðaustur af Vestmannaeyjum. Var leki kominn að skútunni, að því er fram kemur í færslunni.

Önnur þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að vera í viðbragðsstöðu í Vestmannaeyjum. Var það bæði vegna skútunnar og sjúkraflugsins.

Björgunarskipið Þór, á vegum Landsbjargar, var kallað út og tók það skútuna í tog til Vestmannaeyja.

Veikindi á Snæfellsnesi

Á tíunda tímanum var áhöfnin á TF-EIR kölluð út vegna veikinda á sunnanverðu Snæfellsnesi.

Var viðkomandi fluttur á Landspítalann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert