Lögreglu barst tilkynning um ungmenni með byssur í hverfi 101. Reyndust þetta svo vera krakkar í byssu- og bófaleik.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Tilkynnt var um mann sem var að bera sig í hverfi 105. Þegar lögreglu bar að var ekkert að sjá.
Þjófnaður á veski og buxum frá verslun í hverfi 105 var tilkynntur til lögreglu, sem og þjófnaður frá verslun í hverfi 108.
Lögreglu barst einnig tilkynning um tvo mismunandi þjófnaði í hverfi 110 sem og eitt innbrot í sama hverfi.