Ása Laufey skipuð prestur í Háteigskirkju

Ása Laufey Sæmundsdóttir hefur verið skipuð prestur í Háteigskirkju.
Ása Laufey Sæmundsdóttir hefur verið skipuð prestur í Háteigskirkju. Ljósmynd/Aðsend

Ása Laufey Sæmundsdóttir hefur verið skipuð prestur í Háteigskirkju og var það valnefnd sem kaus sr. Ásu Laufey prest innflytjenda til Þjónustunnar. 

Háteigskirkja tilheyrir Háteigssókn sem er víðferm sókn með 12.500 íbúa og fylgja sóknarmörk helstu stofnbrautum í Hlíðunum og Holtunum. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Þjóðkirkjunnar

Þjónaði íslenska söfnuðinum í Noregi 

Sr. Ása Laufey er fædd árið 1979 á Siglufirði, en ólst síðar upp í Breiðholti og vesturbæ Reykjavíkur.

Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð árið 2000 og mag. theol gráðu í guðfræði frá Háskóla Íslands haustið 2013. Sr. Ása Laufey lauk framhaldsmenntun í sálgæslu hjá Endurmenntun Háskóla Íslands vorið 2020 og MA prófi í guðfræði árið 2022.

Sr. Ása Laufey starfaði sem fræðslufulltrúi og prestur íslenska safnaðarins í Noregi frá árinu 2014 til ársins 2017 og var hún vígð til íslensku kirkjunnar í Noregi þann 22. febrúar árið 2015. 

Hún starfaði síðar sem æskulýðsprestur í Neskirkju og sem héraðsprestur um nokkurt skeið í afleysingum og hafði þá aðsetur í Háteigskirkju.

Annar prestur innflytjenda 

Sr. Ása Laufey hefur síðustu þrjú ár þjónað sem annar prestur innflytjenda og haft aðsetur í Breiðholtskirkju.

Eiginmaður sr. Ásu Laufeyjar er Andrés Jónsson, stjórnendaráðgjafi og stofnandi Góðra samskipta. Þau eiga eina dóttur, Lóu Bjarkar.

Þess má að lokum geta að afi Ásu Laufeyjar, sr. Árelíus Níelsson, þjónaði sem prestur víða um land, síðast í Langholtskirkju í Reykjavík. Sr. Árelíus þótti sérlega afkastamikið skáld og var mikill forgöngumaður í æskulýðsstarfi og starfi með fólki með vímuefnavanda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert