Þyrla sótti veikan mann í skemmtiferðaskip

Þyrla Landhelgisgæslunnar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um áttaleytið í morgun vegna veikinda eldri karlmanns um borð í skemmtiferðaskipi.

Skipið var statt fyrir norðan Vestfirði á leiðinni til Ísafjarðar þegar útkallið barst, að sögn varðstjóra hjá Landhelgisgæslunni.

Þyrlan er á leiðinni baka til Reykjavíkur með manninn, sem verður fluttur á Landspítalann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert