Tryggja þarf fjármagn til Landspítala

Ríkiendurskoðun gerir ráð fyrir því að fleiri úttektum verði beint …
Ríkiendurskoðun gerir ráð fyrir því að fleiri úttektum verði beint að spítalanum á næstu misserum. mbl.is/Árni Sæberg

Auka þarf vægi og sýnileika þjónustutengdrar fjármögnunar við fjármögnun Landspítala og tryggja að fjármagn sé til staðar til að mæta umframframleiðslu sem samningar við Sjúkratryggingar kveða á um.

Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar sem ber yfirskriftina Landspítali - fjármögnun og áætlanagerð. Mat Ríkisendurskoðunar er að efla þurfi þekkingu hjá þeim sem koma að ofangreindum atriðum og ekki síst hjá þeim sem sinna kaupum og eftirliti með heilbrigðisþjónustu fyrir hönd ríkisins. 

Endurnýjun hluti af eðlilegri starfsemi

Framlög til fjárfestinga hafa ekki vaxið í takt við verðlag og vöxt í þjónustu eins og önnur framlög til spítalans, að því er fram kemur í skýrslunni.

Vakið er athygli á því að iðulega þegar kemur að viðhaldi eða endurnýjun tækjabúnaðs séu veitt sérstök framlög og aukafjárveitingar.

Aftur á móti er endurnýjun og viðhald búnaðs á hátæknisjúkrahúsi hluti af eðlilegri starfsemi sjúkrahússins, þannig mætti gera ráð fyrir fjárveitingunum eða framlögunum í fjárlögum, að mati Ríkisendurskoðunar.  

Þannig telur Ríkisendurskoðun að gera þurfi betur grein fyrir ófyrirséðum útgjöldum sem mætt er með fjáraukalögum og greina frá ástæðum þeirra og nýtingu. 

Landspítali þyrfti að bregðast við mögulegri sóun

Skýrslan kemur með fjórar ábendingar til heilbrigðisráðuneytisins.

Auka þarf vægi og sýnileika þjónustutengdrar fjármögnunar og vinna að uppbyggingu í þekkingu á fjármögnuninni. 

Einnig þarf að skoða þróun á fjárfestingaframlögum til spítalans og bæta framsetningu á ársskýrslum ráðherra hvað varðar samhengi fjárveitinga til spítalans við þjónustuna sem honum er gert að sinna. 

Ríkisendurskoðun kom með eina ábendingu til Landspítala um að leggja þurfi áherslu á greiningu fyrirliggjandi rekstragagna og leita leiða til þess að hagnýta við stjórnun og gerð áætlana. 

Landspítali þyrfti þannig að greina og bregðast við mögulegri sóun í rekstrinum. 

Ríkiendurskoðun gerir ráð fyrir því að fleiri úttektum verði beint að spítalanum á næstu misserum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka