Áfram er virkni í einum gíg sem helst nokkuð stöðug í eldgosinu í Sundhnúkagígum. Hraun rennur að mestu til norðvesturs og þá er land hætt að síga í Svartsengi. Gasmengunar gæti orðið vart í Grindavík.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veðurstofunnar.
Fyrstu dagana eftir að eldgosið hófst mældist landsig í Svartsengi sem benti til þess að meira magn kviku flæddi úr kvikusöfnunarsvæðinu og upp á yfirborð heldur en flæddi inn í það af dýpi.
„Aflögunarmælingar undanfarna daga sýna að landsig virðist hafa stöðvast og því líklegt að flæði kviku frá dýpi inn í kvikusöfnunarsvæðið sé núna sambærilegt því sem er á yfirborði í Sundhnúkagígaröðinni,“ segir í tilkynningunni.
Níu dagar eru síðan að eldgosið hófst og frá því 4. júní hefur aðeins einn gígur verið virkur. Hraun frá honum rennur að aðallega til norðvesturs í átt að Sýlingarfelli þar sem hraunbreiðan þykknar, en þaðan eru virkir hraunstraumar norður fyrir Sýlingarfell.
Flatarmál hraunbreiðunnar er orðið 8,6 ferkílómetrar og rúmmál um 36 milljón rúmmetrar. Þetta er byggt á gögnum sem myndmælingateymi Náttúrufræðistofnunar og Landmælinga hafa unnið úr, sem sérfræðingar Eflu, Verkís og Svarma söfnuðu í drónaflugi yfir gosstöðvarnar þann 3. júní.
„Út frá þessum mælingum er áætlað meðalhraunflæði frá eldgosinu frá því síðdegis 29. maí til 3. júní um 30 m3/s. Þessar niðurstöður eru byggðar á gögnum sem ná yfir um 70% af hraunbreiðunni en gert er ráð fyrir því að ekki hafi orðið markverðar breytingar á hraunbreiðunni utan þess svæðis á milli mælinga.
Eftir að þessar mælingar voru gerðar varð sú breyting á virkni gossins að virkum gígum fækkaði og einn gígur hefur verið virkur síðan 4. júní. Ekki eru til mælingar á hraunflæði síðan þá, en til samanburðar var hraunflæði frá síðasta eldgosi á Sundhnúkagígaröðinni áætlað um 3-4 m3/s þegar einn gígur var virkur,“ segir í tilkynningunni.
Veðurspá gerir ráð fyrir norðanátt í dag og á morgun. Gasmengun berst því til suðurs og hennar gæti orðið vart í Grindavík.
„Enn er talsverð óvissa með magn gastegunda frá gosstöðvunum,“ segir í tilkynningunni.
Hægt er að fylgjast með rauntímamælingum ýmissa gastegunda á vefnum loftgaedi.is og gasdreifingarspá Veðurstofunnar.
Eins og greint hefur verið frá þá mældist í fyrsta skipti, síðan eldgosavirkni hófst í Sundhnúkagígaröðinni í desember 2023, landsig í Svartsengi á meðan eldgosi stendur.
Í gær birti Jarðvísindastofnun Háskólans fyrstu berg- og jarðefnafræðigögn frá yfirstandandi eldgosi og sýna gögnin að efnasamsetning kvikunnar sem nú kemur til yfirborðs sé ólík þeirri sem hefur komið upp í síðustu fjórum eldgosum á Sundhnúkagígaröðinni.
Þó líkist þetta kvikunni frá byrjun eldgossins í Geldingadölum 2021.
„Þessar niðurstöður eru merki um að kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi sé að breytast. Að svo stöddu er ekki hægt meta nákvæmlega hvers konar breytingar eru í gangi, en á næstunni verður fleiri gögnum safnað og þau rýnd til að reyna að varpa ljósi á þær,“ segir í tilkynningunni.
Hættumat hefur verið uppfært í ljósi þróunar á eldgosinu og veður- og gasdreifingarspár. Hættumat er að mestu óbreytt, en svæði 7 hefur verið fært af gulu upp í appelsínugult vegna mögulegrar gasmengunar.
Kortið gildir að öllu óbreyttu til 13. júní.+