Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á Suðurland eftir að bíll valt nálægt Kirkjubæjarklaustri um kl. 20 í kvöld.
Fimm manns voru í bílnum en tvær konur voru fluttar með þyrlunni á Fossvogsspítala, hinir farþegarnir gengu út úr bílnum eftir að hann valt.
Þetta segir Frímann Baldursson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.
Bíllinn er fólksbíll og hann valt af Suðurlandsvegi mitt á milli Skaftártunguvegar og Kirkjubæjarklausturs.
Þyrlan var ræst út sem öryggisráðstöfun, önnur konan var með áverka á höfði en ekki er vitað um áverka hinnar konunnar.
Fréttin hefur verið uppfærð.