Konurnar tvær sem slösuðust í bílveltu á Suðurlandi fyrr í kvöld eru komnar undir læknishendur á Fossvogspítala í Reykjavík.
Þetta staðfestir Frímann Baldursson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.
mbl.is greindi frá því um fyrr í kvöld að þyrla Landhelgisgæslunnar hefði verið kölluð út á Suðurland. Þá hafði fólksbíll oltið af Suðurlandsvegi á milli Skaftártunguvegar og Kirkjubæjarklausturs rétt fyrir kl. 20.
Fimm manns voru í bílnum en tvær konur voru fluttar með þyrlunni á Fossvogsspítala. Önnur konan var með áverka á höfði en ekki er vitað um áverka á hinni.
Hinir farþegarnir gengu sjálfir út úr bílnum eftir að hann valt. Bíllinn er óökufær eftir slysið, að sögn lögreglu.
Þeir sem ekki voru fluttir á Fossvogsspítala leituðu aftur á móti á heilsugæsluna á Kirkjubæjarklaustri en þeirra ástand hafi verið stöðugt.