Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur aðstoðað Slökkvilið Grindavíkur í dag við að slökkva í sinu við eldstöðvarnar á Sundhnúksgígaröðinni.
Þetta segir í færslu hjá slökkviliðinu á Instagram.
„Hjá þeim hafa margar leiðir verið prófaðar við þessar óhefluðu og erfiðu aðstæður og nokkuð góð reynsla og þekking komin í bankann,“ segir í færslunni.
Í færslunni segir enn fremur að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafi útbúið fleti með tækjum og búnaði sem ætlaður er til að slökkva í sinubruna sem reyndist mjög vel í dag.